Ég er vindurinn
eftir Jon Fosse
Nýjasta verk eins þekktasta samtímaleikskálds Norðurlandanna, sýnt á vegum Leikfélagsins Sóma þjóðar í Kjallaranum.
Leikstjórn: Ingibjörg Huld Haraldsdóttir
Þýðing: Hilmir Jensson
Leikmynd og búningar: Anna María Tómasdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Vala Gestsdóttir.
Leikarar: Hilmir Jensson og Hannes Óli Ágústsson
Leikfélagið Sómi þjóðar frumsýnir Ég er vindurinn, nýtt verk eftir Jon Fosse, eitt vinsælasta núlifandi leikskáld dagsins í dag. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en leikhópinn mynda Hannes Óli Ágústsson og Hilmir Jensson, sem einnig þýðir verkið. Leikmynd og búningar eru í höndum Önnu Maríu Tómasdóttur og tónlist og hljóðmynd í höndum Völu Gestsdóttur.
Sjórinn, kaldur og hættulegur, rólegur og víðáttumikill. 2 menn á ferðalagi án áfangastaðar.
“Allt er svo sýnilegt
það er hægt að sjá allt
það sem fólk reynir að fela með því sem það segir
hlutir sem það vissi ekki einu sinni um sjálft sig
ég sé það allt”
Jon Fosse (f. 1959) er einn af ástsælustu rithöfundum Noregs og eitt vinsælasta núlifandi leikskáld í heiminum í dag. Settar hafa verið upp yfir 900 uppfærslur á verkum Fosse á 40 tungumálum og hefur hann hlotið fjöldamörg verðlaun fyrir verk sín. Fosse var meðal annars sæmdur orðunni Chevalier de l'Ordre National du Mérite árið 2007 en einnig hefur hann unnið Norrænu leikskáldaverðlaunin og Ibsenverðlaunin árið 2010. Ég er vindurinn er annað verk Fosse sem sviðsett er af íslensku atvinnuleikhúsi en Þjóðleikhúsið sýndi verkið Sumardagur vorið 2006 í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Einnig hafa verk Fosse verið flutt í Útvarpsleikhúsinu.
Ég er Vindurinn frá árinu 2007 er nýjasta verk Fosse og gæti jafnframt verið það síðasta en Fosse gaf nýlega út þá yfirlýsingu að hann væri alfarið hættur að skrifa fyrir leikhús.
Upplýsingar um aðstandendur:
Ingibjörg Huld Haraldsdóttir útskrifaðist vorið 2011 úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Ingibjörg tók sín fyrstu skref sem leikstjóri í útskriftarverki sínu þar sem hún leikstýrði leikverkinu Spuni eða Kamelljón fjárhirðisins eftir Eugene Ionesco í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Ingibjörg er meðlimur í leikgjörningahópnum Homo Ludens og hefur með þeim sett upp tvær sýningar.
Hannes Óli Ágústsson útskrifaðist úr Leiklistardeild LHÍ vorið 2009. Hannes hefur undanfarið ár unnið hjá Þjóðleikhúsinu en einnig starfað með sjálfstæðum leikhópum á borð við Áhugaleikhús Atvinnumanna og Hreyfiþróunarsamsteypunni.
Hilmir Jensson útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2010. Hilmir hefur tekið þátt í nokkrum uppfærslum hjá Þjóðleikhúsinu, Lé konungi, Ballinu á Bessastöðum, Bjart með köflum og Leitinni að jólunum. Auk þess hefur hann unnið ýmis verkefni utan leikhússins. Hann lék í útskriftarverkefni Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur úr fræðum og framkvæmd, Kamelljóni fjárhirðisins. Nú síðast lék hann í leiksýningunni Gálmu, í leikstjórn Tryggva Gunnarssonar, sem sýnd var í Norðurpólnum í október og var fyrsta verkefni Sóma þjóðar. Hilmir starfar við Þjóðleikhúsið og tekur næst þátt í Vesalingunum á vorönn 2011.
Anna María Tómasdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild, Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands síðastliðið vor. Anna María hefur unnið við kvikmyndir og leikhús við búningagerð og starfar nú í Borgarleikhúsinu í leikmunadeild. Anna María hefur fengist við leikstjórn, leik og handritaskrif í ýmsum verkefnum og er meðlimur í leikhópunum Homo Ludens, Einn dans við mig og Sóma þjóðar. Þetta er annað verkið þar sem hún gerir búninga með Sóma þjóðar, en fyrra verkið var Gálma eftir Tryggva Gunnarsson.
Vala Gestsdóttir útskrifaðist vorið 2011 úr tónsmíðum við LHÍ. Í samvinnu við aðra nemendur tónlistarbrautar tók Vala þátt í tveimur sýningum Nemendaleikhúsins veturinn 2009-2010. Vala stundar nú meistaranám í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi við LHÍ, með áherslu á tónsmíðar.