Uppnám - Á Stóra sviðinu!

eftir Pörupilta og Viggó og Víólettu

Uppnám - Á Stóra sviðinu!
Sýning á Stóra sviðunu þann 3.febrúar!

 

Homo Erectus – Pörupiltar standa upp!

 
Frumsamin ljóð, óskiljanleg töfrabrögð, þrælæfð dansatriði, ástir og örlög, æðruleysi, atvinnuleysi, umbreyting, pjásur og pælingar, tilgangur lífsins, tilvistarkreppa mannsins, taktföst tónlist, heimspeki, heilabrot og daður dauðans!
 
Pörupiltarnir eru aftur mættir til leiks!
 
Pörupiltar: Sólveig Guðmundsdóttir, Alexía Björg Jóhannesdóttir og María Pálsdóttir.
 
 
Viggó og Víóletta - Sjálfshjálparsöngleikurinn

 
Hið konunglega söngleikjapar Viggó og Víóletta setur á svið Sjálfshjálparsöngleikinn. Búast má við miklum tilfinningahita og gleði þar sem þetta stórmerkilega par hefur skemmt landanum í þrjú ár við mikinn fögnuð.

Sjálfshálparsöngleikurinn er kvöldskemmtun sem enginn mun ganga ósnortinn út af. Viggó og Víóletta taka fyrir viðkvæm málefni eins og fordóma, útlendingahatur, kynþáttafordóma, hómófóbíu og meðvirkni. Þau eru óhrædd við að takast á við skugga samfélagsins þó svo að gagnrýnisraddir hafi sagt að þau sjálf séu haldin umræddum fordómum. Með gleðina að leiðarljósi kenna þau áhorfendum hvernig á að lifa lífinu á farsælan og hamingjuríkan hátt í söng, leik og dansi.
 
Viggó og Víóletta: Bjarni Snæbjörnsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir.

"Frábær skemmtun í Þjóðleikhúskjallaranum" **** E.B. Fréttablaðið 

 

>
Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 2500 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
03.09.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
1 klst. 50 mín. 



Letur breytingar


Leit