Dagleiðin langa

eftir Eugene O’Neill

Dagleiðin langa
Eitt frægasta og magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar
    
Nóbelsverðlaunahafinn Eugene O’Neill (1888-1953) er gjarnan kallaður faðir bandarískrar nútímaleikritunar og meistaraverk hans Dagleiðin langa (Long Day’s Journey into Night) hafði mikil áhrif á dramatíska leikritun á seinni hluta tuttugustu aldarinnar. O’Neill skrifaði verkið, sem er að sumu leyti sjálfsævisögulegt, á árunum 1939–41 en það var ekki frumflutt fyrr en árið 1956, nokkru eftir dauða hans, og hlaut það Pulitzer verðlaunin ári síðar.

Leikritið gerist á miklum átakadegi í lífi Tyrone-fjölskyldunnar, hjóna og tveggja uppkominna sona þeirra. Fjölskyldan er þrúguð af ægivaldi fjölskylduföðurins, og  áfengissýki og lyfjaneysla varpa dimmum skuggum á öll samskipti. Fjórar skemmdar manneskjur sem standa máttvana gagnvart erfiðum aðstæðum kunna engin ráð betri en að ásaka hver aðra og brjóta hver aðra niður á milli þess sem þær tjá ást sína og umhyggju.

Dagleiðin langa er magnþrungið listaverk, fallegt í hrikaleik sínum, nærgöngult og grimmt. Hér er sálrænum afleiðingum kúgunar og neyslu lýst á einstaklega áhrifamikinn hátt.

Leikritið hefur tvívegis áður verið sýnt í Þjóðleikhúsinu, árið 1959 undir heitinu Húmar hægt að kveldi og árið 1982 undir heitinu Dagleiðin langa inn í nótt.


Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 4300 kr.

Kaupa miða

Næstu sýningar

  • 24
    feb.
    19:30
  • 29
    feb.
    19:30
  • 01
    mar.
    19:30
  • 02
    mar.
    19:30
  • 03
    mar.
    19:30
  • 07
    mar.
    19:30
  • 09
    mar.
    19:30
  • 10
    mar.
    19:30
  • 11
    mar.
    19:30
  • 16
    mar.
    19:30
  • 17
    mar.
    19:30
  • 18
    mar.
    19:30

Um sýninguna

Frumsýning:
24.02.2012 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit