Beint í leiðarkerfi vefsins.
eftir Alain Boublil og Claude-Michel Schönberg
Mögnuð stórsýning í flutningi framúrskarandi listamanna.
eftir Harold Pinter
Eitt allra skemmtilegasta leikrit Nóbelsskáldsins Harolds Pinters.
eftir Eugene O’Neill
Magnþrungið leikverk, fallegt í hrikaleik sínum, nærgöngult og grimmt. Hér er sálrænum afleiðingum kúgunar og neyslu lýst á einstaklega áhrifamikinn hátt.
eftir William Shakespeare
Einleikur Sigurðar Skúlasonar í leikstjórn Benedikts Árnasonar byggður á brotum úr leikritum og sonnettum Shakespeares.
eftir Karl Th. Birgisson
Einn alvinsælasti útvarpsþáttur þjóðarinnar undanfarin ár, Orð skulu standa, snýr nú heldur betur aftur í Þjóðleikhúskjallaranum.
eftir Bernd Ogrodnik
Einstaklega falleg ný sýning eftir brúðumeistarann Bernd Ogrodnik, byggð á meistarverki Hemingways. Á Listahátíð í Reykjavík.
eftir Kjartan Ragnarsson
Tólf klukkustunda langt myndbandsverk af sviðsetningu á lokaaríu Brúðkaups Fígarós á Stóra sviðinu frá klukkan tólf á hádegi til miðnættis. Á Listahátíð í Reykjavík.
eftir leikhópinn
Þjóðleikhúskjallaranum breytt í rafmagnaðan danstónleikastað. Á Listahátíð í Reykjavík.
eftir Henrik Ibsen
Gestasýning frá Sviss, verðlaunasýning ungs íslensks leikstjóra á hinu klassíska verki Ibsens. Á Listahátíð í Reykjavík.
eftir Halldór Laxness
Ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins í nýrri leikgerð. Heillandi verk um fegurðarþrána, veraldlega fátækt og andleg auðæfi.
eftir Sofi Oksanen
Áleitið og óvægið skáldverk sem vakið hefur mikið umtal. Í senn saga um baráttu kúgaðra og niðurlægðra einstaklinga og reynslu heillar þjóðar af harðstjórn og ófrelsi.
eftir Yasminu Reza
Endurgerð geysivinsællar sýningar sem var á fjölum Þjóðleikhússins fyrir um fimmtán árum um vináttuna.
eftir Auði Övu Ólafsdóttir
Margverðlaunaður skáldsagnahöfundur skrifar sitt fyrsta leikrit. Leiklist, dans, tónlist og myndlist er stefnt saman til að skapa margslungna leikhúsupplifun.
eftir Þorvald Þorsteinsson og Árna Egilsson
Hið árlega aðventuævintýri Þjóðleikhússins, sem hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins þegar það var frumsýnt árið 2005.
Ævintýraferð í leikhúsið fyrir börn á aldrinum 3ja til 8 ára, þar sem börnin kynnast leikhúsinu og spunnið er og leikið út frá gamla ævintýrinu um Hlina kóngsson.
eftir Áslaugu Jónsdóttur
Hjartnæm og fjörmikil sýning um tilfinningaríka vináttu og samskipti skrímslanna vinsælu.
eftir Arthur Miller
Mögnuð nútímaklassík um ábyrgð, græðgi, sekt og sakleysi. Sýningin var tilnefnd til sex Grímuverðlauna.
eftir Gerði Kristnýju
Nýtt og sprellfjörugt barnaleikrit um forseta, prinsessu, draug og landnámshænu. Byggt á geysivinsælum bókum Gerðar Kristnýjar.
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Nýr gleðigjafi frá Ólafi Hauki! Kraftmikið og skemmtilegt verk með tónlist frá ofanverðum sjöunda áratugnum.
eftir Tennessee Williams
Leikritið sem kom Tennessee Williams á kortið sem einum fremsta höfundi leikbókmenntanna.
eftir Jon Fosse
Nýjasta verk eins þekktasta samtímaleikskálds Norðurlandanna, Jons Fosse.
eftir Margréti Bjarnadóttur
Í verkinu On Misunderstanding er boðið upp á misskilning í ýmsum myndum. Er þetta allt spurning um sjónarhorn eða er tilvera okkar byggð á misskilningi?
eftir Pörupilta og Viggó og Víólettu
Vegna fjölda áskoranna og mikillar velgengni munu Pörupiltar og hið konunglega söngleikjapar Viggó og Víóletta vera með aukasýningu á Stóra sviðinu 3.febrúar!
Kvöldstund þar sem listamenn deila nýlegum verkum með sjálfum sér og áhorfendum.
eftir Láru Sveinsdóttur
Lára Sveinsdóttir leik- og söngkona mun ásamt Djasshljómsveit Úlfs Eldjárns flytja ýmis vinsæl lög Judy Garland og leiða áhorfendur inn í stormasamt líf hennar.
eftir Ég og vinir mínir
Sýningin VERÐI ÞÉR AÐ GÓÐU fagnar manneskjunni sem marglaga félagsveru.
eftir Bakaríið
Bakaríið er nýr tilraunaleikhópur á sviði brúðuleikhúss og myndræns leikhúss, sem sýnir hér verk í vinnslu.
eftir Hallveigu Thorlacius, leikgerð byggð á Laxdælu
Myndræn leiksýning sem byggir á Laxdælu. Sýningar fyrir skólahópa á virkum dögum og opnar sýningar um helgar í Kúlunni.
eftir Guðmund Inga Þorvaldsson, Gunnar Sigurðsson og fleiri
Nýstárleg og fjörug sýning þar sem dregnar eru fram kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna og annað sem brennur á unglingum á aldrinum 14-16 ára. Sýningar fyrir skólahópa í Kassanum.
eftir Grínhópinn Mið-Ísland
Til að gleðja landsmenn í skammdeginu og slyddunni snýr Mið-Ísland hópurinn aftur í Þjóðleikhúsið.
eftir Aldrei óstelandi
Ný leikgerð um morðin á Sjöundá eftir leikhópinn Aldrei óstelandi.
eftir Tinnu Grétarsdóttur og hópinn
Skýjaborg er danssýning sem er sérstaklega hugsuð fyrir yngstu börnin þar sem litir, form, ljós og tónlist tala til barnanna.