Undantekningin

eftir leikhópinn Nya Rampen

Undantekningin

Gestasýning frá Nya Rampen, sýnd á leiklistarhátíðinni Lókal.

 

 

Undantekningin er kabarettsýning, byggð á kennsluleikriti eftir Bertolt Brecht sem nefnist Undantekningin og reglan. Nya Rampen hafði sótt um leyfi til þess að setja leikritið á svið, en ekki fengið og ágreiningurinn við rétthafa leikritsins varð að lokum efnviður í sjálfstæða leiksýningu.

 

 

Í leikriti Brechts er sögð saga af ríkum kaupmanni sem þarf að komast yfir Yahi-eyðimörkina til þess að ganga frá samningi um olíukaup. Sagan lýsir samskiptum hans við burðarmann sinn, og endurspeglar stéttaskiptingu og átök stéttanna. Sýning Nya Rampen er afrakstur sjö vikna leiksmiðju, þar sem hópurinn vann úr efninu á sinn hátt. Sagan er í leiksýningunni er ekki línuleg, atburðarásin er hröð og það er mikið um söngva og skemmtileg atriði – og pælingar.

 

 

Nya Rampen (The New Stage) er sænskumælandi atvinnuleikhús með aðsetur í Helsinki. Stofnendur þess eru Elmer Bäck, Rasmus Slätis og Jakob Öhrman. Nya Rampen hefur verið í samstarfi við aðra kunna leikhópa, meðal annars Teater Viirus og Institutet frá Málmey. Markmið leikhússins er að finna nýjar nálgunaraðferðir og færa leikhúsið nær nýjum áhorfendum.

 

 

Sýningin fer fram á sænsku en ítarlegur úrdráttur á ensku liggur frammi í miðasölu. Einnig er hægt að nálgast hann á heimasíðu LÓKAL, www.lokal.is

 

 

Sýningar í Kassanum 1. og 2. september

 

Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 2700 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
01.09.2010 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit