Kæra skrímsli,
Hvaðan komstu og hver bjó þig til? Þú birtist mér í draumi en núna ertu hér. Hvað viltu mér?
Skrímsli fæðast í hugum okkar út frá ótta við lífið, náttúruna, myrkrið, hið óþekkta og dauðann.
Skrímslin leynast allstaðar, stundum eru þau hulin en öðrum stundum eru þau auðþekkjanleg. Stundum taka þau sér jafnvel bólfestu í okkar eigin líkama. Útlitið getur vissulega blekkt og mörkin milli veruleika og ímyndunarafls verða stundum óljós.
Við sáum skrímsli er ljóðrænt verk þar sem hryllingur eins og hann birtist í trúarbrögðum, þjóðsögum, kvikmyndum og í raunveruleikanum er skoðaður í gegnum dans, söng, tónlist og myndlist.
Listrænn stjórnandi: Erna Ómarsdóttir.
Skapað og sýnt af Ernu Ómarsdóttur, Valdimari Jóhannssyni, Sigtryggi Berg Sigmarssyni, Ásgeiri Helga Magnússyni, Lovísu Ósk Gunnarsdóttur og Sigríði Soffíu Níelsdóttur.
Dans: Ásgeir Helgi Magnússon, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir og Erna Ómarsdóttir. Tónlist: Valdimar Jóhannsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson. Listrænn ráðgjafi: Gabríela Friðriksdóttir. Dramatúrg: Karen María Jónsdóttir.
Sýning Shalala, unnin í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið með styrk frá Menntamálaráðuneytinu. Aðrir styrktaraðilar: Kópavogsbær, le CNDC Centre national de danse contemporaine Angers, WP zimmer/Antwerpen.
Frumsýning á Stóra sviðinu í lok maí.
-------------------
Dear monster.
Where did you come from and who made you? You appeared to me in a dream and now you are here. What do you want from me?
Monsters are often born in our minds out of fear of life, nature, darkness, the unknown and death.
Therefore we sometimes inadvertently materialize our abstract conception of terror. With time the the roles are reversed and the true monsters that can be found in modern society become the cause of terror.
The monsters can be lurking everywhere, often they are disguised but sometimes they are easily recognizable. They can even possess our own bodies.
Appearances can be deceiving and the boundaries between reality and imagination can become unclear.
We saw monsters is a poetical piece where dance, singing, music and visual art is used to inspect the difference of horror in religion, myths, movies and real life.
-----------
Ferilskrár frá þátttakendum:
Erna Ómarsdóttir útskrifaðist úr MR 1991 og síðan PARTS (Performing
Arts Research and Training studios) í Brussel árið1998.
Eftir útskrift starfaði hún í nokkur ár með nokkrum alþjóðlega
viðurkenndum dans og leikstjórum eins og Jan Fabre ,Sidi Larbi
Cherkoui og Ballet c de la B.
Síðastliðin ár hefur hún aðalega verið að skapa og ferðast alþjóðlega
með eigin verk, þar á meðal " IBM 1401 ( a users manual) ",2002 og
"The Mysteries of love" 2006 í samvinnu við Jóhann Jóhannsson,
tónskáld.
Hún skapaði og leikstýrði fyrir fyrir íslenska dansflokkinn " We are
all Marlene Dietrich FOR", 2005 í samvinnu við Janes Janza (Emil
Hrvatin) og í samvinnu við Damien Jalet and Gabríelu Friðriksdóttiur
"Transaquania (out of the Blue)" 2009 and "Tranaquania-into thin air",
2010.
Árið 2009 samdi hún Black Marrow fyrir danshópinn ástralska Chunky
Move á Melbourne International Artsfestival einnig í samvinnu við
Damien Jalet.
Með Valdimari Jóhannssyni tónlistarmanni stofnaði hún danshópinn
Shalala árið 2008. Þeirra síðustu verk eru meðal annars " Teach us to
outgrow our madness" og tónleika performansinn "Lazyblood". Öll verk
Ernu og Shalala hafa verið sýnd á hinum ýmsu alþjóðlegu leiklistar og
danshátíðum út um alla Evrópu.
Hún var ein af stofnendum og meðlimum dansleikhúss með Ekka frá
Reykjavik og fjöllistahópsins Poni frá Brussel og SKYR LEE BOB.Einnig
hefur hún starfað fyrir Þjóðleikhúsið sem danshöfundur fyrir Bakkynjur
og Sædýrasafnið.
Erna hefur verið í samstarfi við með margt frábært listafólk eins og
Gabríelu Friðriksdóttur, Björk Guðmundóttur, Ólöfu Arnalds, Ben
Frost, Arthur Nauzyciel,hljómsveitinni Reykjavík, Margréti söru
Guðjónsdóttur osfv.
Í Nóvember 2007 var hún valin heiðurslistamaður Les Grandes
Traversees í Bordeaux in Frakklandi .Hún hefur hlotið 5 Grímur og
einnig verið tilnefnd í nokkur skipti fyrir bestan dans eða efnilegan
danshöfund í hinu útbreidda alþjóðlega danstímariti Ballet Tanz.
English short bio 2011
Valdimar Jóhannsson
Útskrifast 2008 SAE institute, Brussels Audio engineering
Hljómsveitir Nine Elevens (2002-2011), Reykjavik!(2003-2011) and Lazyblood(2009-2011)
Leikhús: Flest um fátt: (Október 2006) Samdi og flutti tónlist ásamt Jóhanni F Jóhannssyni fyrir
danshópinn Vaðal.
Mysteries of love:(Júní2006) Flutti tónlist og tók þátt í sköpun í verki eftir Ernu Ómarsdóttir and
Jóhann Jóhannsson
Stofnaði Shalala ehf 2008 ásamt Erna Ómarsdóttir Digging in the sand (Júlí 2008) Samdi og flutti
tónlist ásamt Erna Ómarsdóttir í verki eftir Erna Ómarsdóttir og mig. Fermentation (Janúar 2009),
Samdi tónlist fyrir gjörning eftir Gabríela Friðriksdóttir og Erna Ómarsdóttir. Teach Us To Outgrow
Our Madness (Febrúar 2009) Samdi og flutti tónlist ásamt Lieven Dousselaere í verki by Erna
Ómarsdóttir, Transaquania, out of the blue (Apríl 2009) og Transaquania, into thin air (2010) Samdi
tónlist ásamt Ben Frost í verki eftir Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet and Gabríela Friðriksdóttir
Sigríður Soffía Níelsdóttir hóf nám við Jazzballettskóla Báru árið 1997 auk þess að stunda ballett við Klassíska Listdansskólann. Áður hafði hún æft fimleika hjá fimleikadeild Ármans í tvö ár. Hún var við
skiptinám í sirksusskólanum ESAC í Brussel en útskrifaðist frá Dansbraut Listaháskóla Íslands
2009. Sigríður hefur unnið sjálfstætt frá útskrift og dansar því með nokkrum hópum. Helst má nefna
Shalala, Dansflokk Ernu Ómarsdóttur, en verkið Teach us to outgrow our madness sem hún dansar í
hefur verið sýnt víða í Evrópu á síðastu árum. Verkið var frumsýnt á Antipode hátíðinni í Brest
2009 en hefur m.a. verið sýnt í víðsvegar í Frakklandi Bretlandi,Belgíu,Hollandi,Ítalíu,Íslandi svo
eitthvað sé nefnt. Sigríður er einnig partur af gjörningalistahópinn Bristol Ninja Cava Crew, DF-Krumma,danshöfundatvíeykið Sigga og Snædís. 2010 samdi Sigríður verkið "Colorblind" fyrir Pólska dansflokkinn "Silesian Dance Theater" verkið var frumsýnt í Bytom í Póllandi en var einnig sýnt í Reykjavík og Varsjá. Sigríður var boðið að sýna aftur í Póllandi næsta sumar og dansar þá með DF-Krumma í verkinu Þá skal ég muna þér kinnhestinn sem frumsýnt var á Reykjavík Dancefestival 2010. Sigríður dansar nú með Íslenska dansflokknum í verkinu Transaquania en hún semur einnig nýtt verk fyrir flokkinn sem frumsýnt verður 4 mars 2011. Verkið ber nafnið "White for Decay" en Sigríður hlaut Prologos leikritunarstyrk Þjóðleikhússins til gerðar á verkinu. Árið 2008 samdi hún og leikstýrði dansstuttmyndinni "Uniform Sierra" en myndin hlaut fyrsta sæti sem besta dansstuttmynd á Actfestival´09 og áhorfendaverðlaun Stuttmyndadögum í Reykjavík 2008 Myndin hefur nú verið sýnd á festivölum á Íslandi,Ástralíu, Noregi, Svíþjóð, Spáni &
Finnlandi. Uniform Sierra var valin sem partur af alþjóðlega sýningarhluta Ástralska Reeldance
Tvíæringsins og var hún sýnd í 11 stærstu borgum Ástralíu og Nýja –Sjálandi sumarið 2010.
Ásgeir Helgi Magnússon er borinn og barnfæddur Hafnfirðingur. Hann stundaði dansnám við
Jazzballettskóla Báru, við Ballettakademíuna í Stokkhólmi og við Listaháskóla Íslands þar sem
hann útskrifaðist úr diplómanámi vorið 2007 og lauk B.A. prófi vorið 2009
Síðan 2007 hefur hann verið búsettur í Hollandi og dansað í verkum ýmissa danshöfunda, m.a. í
IOVIODIO eftir Gabriellu Maiorino og Mindscaping eftir Bruno Caverna.
Ásgeir er einn af stofnendum listahópsins Menningarfélagið sem sett hefur á svið nokkur dansverk,
nú síðast verkið Aftursnúið á Akureyri vorið 2010.
Veturinn 2010-2011 dansar hann í þremur verkum með Íslenska Dansflokknum; Transaquania –
Into Thin Air eftir Ernu Ómarsdóttur, Damien Jalet og Gabríelu Friðriksdóttur, White for Decay eftir
Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Großtadsafari eftir Jo Strömgren.
Við sáum skrímsli er fyrsta verkefni Ásgeirs með Shalala.
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur, útskrifaðist frá sænsku ballettakademíunni í
Stokkhólmi árið 2002. Síðan þá hefur hún unnið með Íslenska dansflokknum og einnig starfað
sjálfstætt með hinum ýmsu listamönnum, nú síðast með Ernu Ómarsdóttir í verkinu “Teach us to
outgrow our madness”. Árið 2005 stofnaði hún ásamt Höllu Ólafsdóttur Samsuðuna & Co. Eitt af
verkum Samsuðunnar „Kólnandi kaffi“ var m.a. tilnefnt til Grímunnar 2005 í flokki dansverðlauna
og verkinu Hundaheppni var boðið til Dublin á Dublin Dance Festival árið 2008. Lovísa hefur
einnig tekið þátt í nokkrum leikhúsuppfærslum þar sem hún hefur tekið að sér bæði leik- og
danshlutverk, dansleikhússamkeppni Íd og LR og farið í fjölmörg sýningaferðalög m.a. til Japans
með listahópnum Aurora Borealis. Lovísa hefur hlotið viðurkenningu frá Grímunni (Íslensku
leiklistarverðlaunin) fyrir störf sín. Hún starfar um þessar mundir hjá Íslenska dansflokknum og
með hóp Ernu Ómarsdóttur Shalala.
Sigtryggur Berg Sigmarsson
Fæddur 1977, Akureyri.
Lauk MFA gráðu frá Fachochschule Hannover fur Bildende Kunst í Þýskalandi árið 2004.
Áður stundaði hann nám í raftónlist við Royal Konservatorium í Den Haag, Hollandi.
Sigtryggur hefur komið fram á hljómleikum og tekið þátt í myndlistarsýningum afar víða, jafnt
undir sínu
eigin nafni sem og með hljóðtilrauna dúettnum Stilluppsteypa.
Valdar Einkasýningar: 2010, Galery Basement, Vín, Austurríki / 2009, Castle Insterburg,
Tchernyakhovsk, Rússland /
2006, Sonambiente, Berlín, Þýskaland / 2005, Museums Quartier, Vín, Austurríki
Valdar Samsýningar: 2010, Ljóslitlífun, Listasafn Reykjavíkur / Vanish Galery, Frankfurt/Main,
Þýskaland /
Fabbricia del Vapore, Mílanó, Ítalía / Kunsthalle Krems, Krems, Austurríki / 2009, Emerson
Gallery, Berlín,
Þýskaland / 2007, Sound Effects, Seoul, Suður Kórea
Gabríela Friðriksdóttir. List Gabríelu Friðriksdóttur er margvísleg. Hún vinnur jafnt með teikningar, skúlptúr,
málverk og innsetningar ásamt því að stunda performans og vídeólist. Verk hennar hafa
það þó sameiginlegt að vera sprottin af sama tákn og fagurfræðilega meiði, þ.e.a.s. úr
þeim ævintýralega heimi Gabríelu þar sem skáldskapur og raunveruleiki, fegurð og
hræðileiki, dagur og draumur mætast. Verk Gabríelu eru sýnd víða og eru í safna og
einkaeign í ýmsum löndum Fædd í Reykjavík 1971/nam við skúlptúrdeild Listaháskóla
íslands/ býr og vinnur í Reykjavík, Ísland