Hugmyndarík og skemmtileg sviðsetning á Gerplu, sem notið hefur mikilla vinsælda.
Gerpla var frumsýnd í febrúar á liðnu leikári, og er það í fyrsta sinn sem þetta vinsæla skáldverk Halldórs Laxness er sett á svið. Sýningin er einstaklega hugmyndarík og fyndin, með skemmtilegum leikhúsútfærslum, og hefur notið mikilla vinsælda. Sýningin var tilnefnd til sex Grímuverðlauna.
Laxness byggði skáldsögu sína Gerplu meðal annars á Fóstbræðrasögu, en nú hafa Baltasar Kormákur og leikhópur hans tekið skáldverk Laxness og skapað úr því hrífandi leikhúsverk. Sýningin er nokkurs konar leikur með þjóðararfinn, þar sem vísað er í hugmyndir okkar um Ísland og söguöldina, í þjóðleg minni og eldri leikhúsform. Kjarni sýningarinnar er saga Þormóðs Kolbrúnarskálds, skáldsins sem leggur allt í sölurnar fyrir hetjuhugsjónina og skáldskapinn, yfirgefur konu og börn – og þarf að lokum að horfast í augu við það að ef til vill hefur hann fært allar þessar fórnir fyrir rangan málstað, fyrir eitthvað sem var hégómi einn.
Leiksýningin Gerpla er veisla fyrir augu og eyru, þar sem töframáttur leikhússins kemur sífellt á óvart
Sjáðu myndbrot úr sýningunni
“Baltasar Kormákur hefur sýnt á undanförnum árum að hann er afskaplega flinkur leikstjóri og það sýnir hann einnig hér. Sýningin er í reynd þéttriðið net úthugsaðra leiklausna.”
Þorgerður E. Sigurðardóttir, Víðsjá, RÚV.
“Þetta leikverk er svo auðskilið, svo skemmtilegt, fyndið, andríkt og einfalt, að ég óska þess heitast, að allir landsmenn megi njóta og læra af.”
Bryndís Schram, Pressan.is.