Þessi fallega og fjöruga sýning á hinu sívinsæla barnaleikriti Egners, Kardemommubænum, sló svo sannarlega í gegn á síðasta leikári. Allir þekkja ræningjana þrjá, Kasper, Jesper og Jónatan, hinn blíðlynda bæjarfógeta Bastían, yndislegu stúlkuna Kamillu og hina stórlyndu Soffíu frænku – að ljóninu ógleymdu! Nú snýr öll hersingin aftur á leiksviðið, ásamt fjöldanum öllum af börnum, dýrum og öðrum íbúum Kardemommubæjar, og stórri hljómsveit. Yndisleg sýning sem börn á öllum aldri verða að fá að sjá!
Sýningin tekur um tvær klukkustundir, eitt hlé.
Jafnaðarverð fyrir börn og fullorðna á sýninguna er 2.800 kr.