Herra Pottur og ungfrú Lok

eftir Bohuslav Martinu og Christophe Garda

Herra Pottur og ungfrú Lok

Gáskafull og glettin leikhús- og tónlistarveisla fyrir kornunga áhorfendur

Tónævintýrið um herra Pott og ungfrú Lok er draumur lítils drengs um að áhöldin í eldhúsinu lifni við. Ástir herra Potts og ungfrúar Loks fara nánast út um þúfur vegna afbrýðisemi daðurdrósarinnar Kvarnar. Pörupilturinn Klútur og hinn reglufasti herra Sópur dragast inn í atburðarás sem erfitt er að sjá fyrir endann á. Tónlistin segir einnig sögu, en það er saga djass, tangó, charleston og foxtrott.

Sýningin er tvískipt, fyrst leiksýning þar sem sögumaður segir söguna við undirleik sex hljóðfæraleikara sem spila á klarinett, fagott, trompet, fiðlu, selló og píanó. Í lok sýningarinnar verður spuni í léttum dúr og samskipti við áhorfendur út frá leiksýningunni.

Tónlist er eftir Bohuslav Martinu og saga eftir Christophe Garda í þýðingu Hlöðvers Ellertssonar
Leikstjóri: Ágústa SkúladóttirBúningar, brúður og sviðsmynd: Katrín Þorvaldsdóttir
Leikari: Sólveig Simha

Hljóðfæraleikarar: Ármann Helgason, klarinett, Kristín Mjöll Jakobsdóttir, fagott, Eiríkur Örn Pálsson, trompet, Sif Tulinius, fiðla, Sigurður Halldórsson, selló, Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó.

Sýningin er á íslensku, en sýningin 3. júní verður á frönsku. Samstarfsverkefni Óperarctic félagsins og Þjóðleikhússins.

Sýningin er studd af Alliance française, Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði, Barnamenningarsjóði og Barnavinafélaginu Sumargjöf
 

Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 0 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit