Fíasól

eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur

Fíasól

Sprellfjörug sýning fyrir alla fjölskylduna byggð á geysivinsælum bókum.

Átta ára gleðisprengjan Fíasól er drottning í sínu eigin, risastóra hugmyndaríki. En stundum fljúga hugmyndirnar svo hátt að hún missir þær út í vitleysu....

Fíasól í Hosiló er sprellfjörug sýning fyrir alla fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um flækjuhausinn Fíusól. Fíasól býður áhorfendum heim í Hosiló til sín og alla leið inn í hræðilega ruslahauginn sem er herbergið hennar. Við kynnumst fjölskyldunni hennar, besta vininum honum Ingólfi Gauki, bláu skrímslunum í gluggakistunni, draugunum undir rúminu og svo er eins gott að lyfta fótunum svo Sigmundur netþjónn komist að með töfraryksuguna sína!

Sýningin sprettur úr alíslenskum veruleika og á örugglega eftir að kitla hláturtaugar og snerta hjartastrengi barna sem fullorðinna, rétt eins og bækur Kristínar Helgu hafa gert á undanförnum árum.

,,Það er nauðsynlegt fyrir mömmur og pabba að eiga börn svo þeim leiðist ekki.”

 

 

Titillag sýningarinnar Halló Fíasól

Hér koma sýningardagarnir...
Förðun
Svanhvít Valgeirsdóttir

Myndræn útfærsla
Halldór Baldursson

Höfundur
Kristín Helga Gunnarsdóttir

Leikgerð
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Vigdís Jakobsdóttir

Leikstjórn
Vigdís Jakobsdóttir

Leikmynd
Högni Sigurþórsson

Búningar
Leila Arge

Tónlist
Ingó í Veðurguðunum

Lýsing
Jóhann Bjarni Pálmason

Leikarar
Lára Sveinsdóttir
María Pálsdóttir
Sindri Birgisson

Hárgreiðsla
Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir

Verð

Fullorðnir: 1800 kr.

12 ára og yngri: 1800 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
1 klst. 



Letur breytingar


Leit