Dansleikhús án orða fyrir allar yngstu leikhúsgestina. ( 0 til 4 ára)
Sagan segir af hrekkjóttum álfi og óöruggri maríuhænu sem villast inn í litalaust land. Fljótlega taka undarlegir hlutir að gerast, steinar og sveppir blikka, sólin og tunglið svífa yfir og landið breytist í ævintýraskóg. Allt þetta hefur ólík áhrif á verurnar en að lokum sameinast þær og áhorfendur í dansi.
Í lok sýningarinnar og fá börnin svo að skoða sig um á sviðinu, spjalla við álfinn og klappa Maríuhænunni.
Sýningin er gestasýning frá Noregi, en hún hefur verið sýnd í Ósló og nágrenni og hefur alls staðar verið geysilega vel tekið og nú fá íslensk börnum að njóta hennar.
Hugmynd, leikmynd og hreyfingar: Inger Cecilie Bertràn de Lis
Dansarar: Sylvi Fredriksen og Tinna Grétarsdottir
Tónskáld: Karoline Rising Næss
Búningar: Hilde Elisabeth Brunstad
Ljós: Elisabeth Kjeldahl Nilsson
Sýningar í Kúlunni 2. - 6. desember.