Utan gátta

eftir Sigurð Pálsson

Utan gátta

Margverðlaunað listaverk.

Sýningin Utan gátta fékk frábærar viðtökur þegar hún var frumsýnd á síðasta leikári, og er nú tekin aftur til sýninga vegna fjölda áskorana. Sýningin hlaut í vor sex Grímuverðlaun, fleiri en nokkur sýning hefur áður fengið: Sýning ársins, leikstjórn ársins, leikskáld ársins, leikmynd ársins, búningar ársins og lýsing ársins. Sýningin var einnig valin besta sýning ársins 2008 af gagnrýnendum og blaðamönnum Morgunblaðsins.

Villa og Milla, tvær saman eins og gamalt par, bundnar hvor annarri, eins og afbrýðisamar systur, börn í sandkassa. Þær geta engu treyst og sérstaklega ekki hvor annarri… Missið ekki af þessari frumlegu og skemmtilegu sýningu, þar sem sem nokkrir af okkar fremstu leikhúslistamönnum fara á kostum. Sýningar hefjast í byrjun september – stutt sýningatímabil!

„Heldurðu að það væri auðveldara að lifa ef við værum tveir gamlir kallar?“

Fræðsludeild Þjóðleikhússins gefur í haust út fræðslupakka um sýninguna fyrir efstu bekki grunnskóla og framhaldsskóla.

Sýningin tekur um eina og hálfa klukkustund, ekkert hlé

Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 0 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit