Íslandsklukkan

eftir Halldór Laxness

Íslandsklukkan

Stórbrotið skáldverk um sjálfsmynd lítillar þjóðar og sjálfstæði í glænýrri leikgerð.

Afmælissýning Þjóðleikhússins, í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá opnun þess þann 20. apríl árið 1950.

Íslandsklukkan var ein af þremur opnunarsýningum Þjóðleikhússins og verkið hefur, jafnt á bók sem á sviði, notið gífurlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni. Svipmiklar persónur þess, á borð við Jón Hreggviðsson, Snæfríði Íslandssól og Arnas Arneus, hafa eignast sinn vissa stað í hjarta ótal Íslendinga af ólíkum kynslóðum. Í því þjóðfélagslega umróti sem við lifum nú, á þetta stórvirki um tilvistarspurningar sem lítil þjóð stendur frammi fyrir, brýnt erindi við okkur og kallar á að vera skoðað í nýju samhengi, á nýjan hátt.

Íslandsklukkan gerist á miklu niðurlægingarskeiði í sögu íslensku þjóðarinnar, alþýðan býr við fátækt og skort, þarf að þola hörku og vægðarleysi yfirvalda og landið logar af deilum valdamikilla hagsmunaaðila. En, eins og alltaf, þá elskar fólk og á sér vonir og drauma. Saga þjóðarinnar og dramatísk örlög einstaklinga tvinnast saman í sígildu verki um niðurlægingu og reisn, mótlæti, vonbrigði og hugrekki.

„Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti“.

 

Gestir á Íslandsklukkunni geta pantað sér smáréttadisk að hætti Sigga Hall í fyrra hléinu. Diskurinn kostar 1.500 kr. og ef bætt er við léttvínsglasi hækkar verðið í 2.000 kr.

 

Leikskrá sýningar

 

Hér koma sýningardagarnir...

Tónlist og hljóðfæraleikur á sviði
Eiríkur Stephensen
Hjörleifur Hjartarson

Höfundur
Halldór Laxness

Leikgerð
Benedikt Erlingsson

Leikstjórn
Benedikt Erlingsson

Leikmynd
Finnur Arnar Arnarson

Búningar
Helga Björnsson

Lýsing
Halldór Örn Óskarsson
Lárus Björnsson

Leikarar
Anna Kristín Arngrímsdóttir
Arnar Jónsson
Björn Hlynur Haraldsson
Björn Thors
Edda Arnljótsdóttir
Elva Ósk Ólafsdóttir
Erlingur Gíslason
Guðrún Snæfríður Gísladóttir
Herdís Þorvaldsdóttir
Ilmur Kristjánsdóttir
Ingvar E. Sigurðsson
Jón Páll Eyjólfsson
Kjartan Guðjónsson
Lilja Nótt Þórarinsdóttir
Ólafur Darri Ólafsson
Stefán Hallur Stefánsson
Þórunn Lárusdóttir

Verð

Fullorðnir: 3900 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
22.04.2010 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
3 klst. 30 mín. 



Letur breytingar


Leit