Gerpla

eftir Halldór Laxness

Gerpla

Gerpla í fyrsta sinn á leiksviði.

Íslendingasögurnar hafa löngum haft mikil áhrif á sjálfsmynd þjóðarinnar. Með Gerplu, sem kom út árið 1952, réðst Halldór Laxness á sinn hátt í að afhelga hugmyndir okkar um söguöldina og hetjur hennar, en um leið blés hann nýju lífi í samband þjóðarinnar við bókmenntaarfinn. Gerpla er, auk þess að vera sprellfjörug og bráðfyndin, hörð ofbeldis- og stríðsádeila, óvægið uppgjör við hetjudýrkun og mikilmennskuhugmyndir á öllum tímum, og eilífa leit mannsins að einum allsherjarsannleik.

Baltasar Kormákur hefur á undanförnum árum sett upp geysivinsælar sýningar í Þjóðleikhúsinu, þar sem hann hefur tekið vinsæl og virt skáldverk
frumlegum og ögrandi tökum. Ásamt einvala liði leikhúsfólks leggur hann nú til atlögu við meistaraverk Nóbelskáldsins, en Gerpla hefur aldrei áður verið sett á svið. Með hlutverk fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Kolbrúnarskálds fara tveir af þekktustu leikurum yngri kynslóðarinnar, þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson og Björn Thors.

„Þorgeir Hávarsson… brosti því aðeins að honum væri víg í hug ellegar nokkurt annað stórvirki.“

Leikgerð er í höndum  Baltasar Kormáks og Ólafs Egils Egilssonar, unnin í samvinnu við leikhópinn.

 

Í sýningunni flytur leikhópurinn nokkur þekkt sönglög, Ég er kominn heim (Lag: T. Kalmann. Texti: Jón Sigurðsson), Íslenskir karlmenn (Stuðmenn. Lag og texti: Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson), Pínulítill kall (Þursaflokkurinn. Lag og texti: Egill Ólafsson), Stolt siglir fleyið mitt (Gylfi Ægisson).
 

 

 

Hér koma sýningardagarnir...
Leikstjóri
Baltasar Kormákur

Höfundur
Halldór Laxness

Leikgerð
Baltasar Kormákur

Leikmynd
Gretar Reynisson

Búningar
Helga I. Stefánsdóttir

Hljóðmynd
Gísli Galdur Þorgeirsson

Lýsing
Lárus Björnsson

Leikarar
Atli Rafn Sigurðarson
Björn Thors
Brynhildur Guðjónsdóttir
Ilmur Kristjánsdóttir
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Lilja Nótt Þórarinsdóttir
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Ólafur Darri Ólafsson
Ólafur Egill Egilsson
Sindri Birgisson
Stefán Hallur Stefánsson

Verð

Fullorðnir: 3750 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
2 klst. 30 mín. 



Letur breytingar


Leit