Nýtt íslenskt verk um átakanlegt og fagurt líf mexíkósku listakonunnar Fridu Kahlo.
Mexíkóska listakonan Frida Kahlo (1907-1954) er ein af forvitnilegustu myndlistarmönnum 20. aldarinnar. Hún var gift Diego Rivera, einum þekktasta myndlistarmanni síns tíma, og þó að margir yrðu til að heillast af list hennar meðan hún lifði var það ekki fyrr en eftir dauða hennar sem hún hlaut heimsfrægð.
Brynhildur Guðjónsdóttir, sem hlaut Grímuverðlaunin sem leikskáld og leikkona ársins 2008, stígur nú á svið í hlutverki Fridu Kahlo í eigin verki um magnþrungið líf listakonunnar. Með hlutverk Diegos Rivera fer Ólafur Darri Ólafsson. Sýningin er ferðalag um einstæða veröld þessarar tilfinningaríku konu, sem í gegnum sorgir og þjáningar orti hið undursamlega ljóð eigin lífs á striga - átakanlegt en fagurt, hávaðasamt en friðsælt. Það elska engar tvær manneskjur eins, og svo sannarlega engin eins og Frida Kahlo. Ögrandi verk um litina í lífinu og ástinni, þá mildu og þá sterku, þá heitu og djúpu, þá sem trylla og sefa, þá sem blasa við augum allra og þá sem bara sumir sjá.
“Það var moldarilmur af brjóstinu sem nærði mig. Brjóstmóðir mín var dökk og djúp. Hörund hennar var dökkt og hún lyktaði eins og jörðin, eins og moldin í Tehuantepec eftir rigningu.“
Sýningin tekur um tvær klukkustundir og 20 mínútur, eitt hlé.
Frumsýning 11. september
Námskeið og leikhúsferð í samvinnu við Endurmenntun HÍ.