Rokk fjallar um tvær hljómsveitir sem deila með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur að skilja koma upp ýmsir árekstrar og flækjur, enda böndin bæði metnaðargjörn og einstaklingarnir misflinkir í mannlegum samskiptum. Það setur líka óneitanlega strik í reikninginn að í annarri sveitinni eru eingöngu strákar, en hin er aðeins skipuð stelpum. Þar að auki koma við sögu eigandi húsnæðisins og alldularfullur fylgisveinn hennar. Í leikritinu eru nokkur lög, en verkið er þó ekki söngleikur í eiginlegum skilningi, þar sem flutningur laganna er eðlilegur hluti framvindunnar á æfingum hljómsveitanna.
Höfundar: Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson
Höfundur tónlistar: Eggert Hilmarsson
Leikstjórn: Hulda B. Hákonardóttir og Þorgeir Tryggvason
Leikarar eru: Baldur Ragnarsson, Elísabeth Lind Ingólfsdóttir, Flosi Þorgeirsson, Guðmundur Stefán Þorvaldsson, Guðrún Eysteinsdóttir, Guðrún Sóley Sigurðardóttir, Helga Ragnarsdóttir, Hildur Halldórsdóttir, Hjalti Stefán Kristjánsson, Jón Svavar Jósefsson og Ösp Kristjánsdóttir.