Leikritið er skrifað sérstaklega í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima.
Það fjallar um ævi Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima.
Á gamansaman hátt er stiklað á stóru í lífshlaupi þessarar óvenjulegu hetju, dregnar upp myndir af þeim einstaklingum sem á vegi hennar urðu t.d. á uppvaxtarárum hennar í Hafnarfirði og á Þingvöllum, Kaupmannahafnarárum hennar og fyrstu árunum á Sólheimum. Dregnar eru upp myndir af því hvernig Sesselju tókst með góðri hjálp fjölskyldu og vina að búa til heimili fyrir öll þessi börn sem þurftu á umönnun að halda og áttu hvergi höfði sínu að halla.
Ástarsaga hennar og Rudolf Noah er einnig viðfangsefni leikritsins. Sá örlagavaldur í lífi hennar hefur ekki fengið mikla umfjöllun til þessa. Hið óskilgreinda ,,Yfirvald” á Íslandi á þessum tíma er í leikverkinu túlkað á trúðslegan hátt af tveimur snillingum Leikfélags Sólheima og fjórar listakonur túlka hina stórbrotnu Sesselju – m.a. heiðursgestur sýningarinnar, hin ástsæla Diddú.
Þaulreyndir leikarar Leikfélags Sólheima takast á við mörg ólík hlutverk og syngja að auki undurfalleg lög Péturs H. Péturssonar tónskálds, sem hann samdi sérstaklega fyrir leikritið. Áhorfendur fá að hitta fjölmargar skondnar persónur og eru leiddir á skemmtilegan hátt í gegnum ævi Sesselju af bráðskemmtilegum sögumönnum.
Það er ákveðin lífsreynsla að fá að upplifa þessa ótrúlegu snillinga Leikfélags Sólheima túlka allar þessar ólíku persónur á ógleymanlegan hátt.
Sýningin er miðvikudaginn 5. maí kl. 20:00
Aðgöngumiði fullorðnir 2000.- krónur
Aðgöngumiði Börn 1000.- krónur