Stoppleikhópurinn sýnir miðvikudaginn 27 og fimmtudaginn 28 janúar nk. kl. 20.00 í Þjóðleikhúsinu verðlaunaleikritið: “Bólu-Hjálmar” en leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. (Ath! Aðeins þessar tvær sýningar ).
Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna og unglingaleiksýning ársins 2009.
Verkið var frumsýnt 22 maí 2008 í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram í grunnskólum og einnig fyrir eldri borgara. Núna gefst almenningi einstakt tækifæri á að sjá sýninguna.
Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans og muna eftir honum af svipmikilli teikningu í
gömlu Skólaljóðabókinni – „kallinn með hökuskeggið sem er svo grimmilegur til augnanna“. Og þjóðin hampar honum ennþá sem einu af kraftmestu þjóðskáldum sínum fyrr og síðar.
Hann var skapmikill orðhákur sem oft kom sér í vandræði og lenti upp á kant við nágranna sína. Hann var öfundaður og rógborinn. Hann var þjófkenndur og ákærður. Samt virtur og dáður fyrir hæfileika sína og mannkosti.
Þrír leikarar segja söguna og leika allar persónur; Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldismóður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur, nágranna, fjandmenn og vini. Leikritið geymir einnig sýnishorn af kveðskap hans, allt frá því fegursta til andstyggilegustu níðvísna, en fáir voru flinkari í að meitla saman kjarnmikið níð en Hjálmar.
Höfundar handrits og tónlistar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikarar: Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir.
Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.
Sýningartími: 50 mínútur. www.stoppleikhopurinn.com