Líkamlegur ótti er mönnum eðlislægur, rétt eins og öðrum skepnum, og gegnir því nauðsynlega hlutverki að stýra okkur út úr aðsteðjandi hættum. Erfiðara er að úrskurða um hagnýtt gildi ýmissa hugarburða og vitrana sem herja á okkur, halda fyrir okkur vöku, en stuðla jafnframt að doða og fælni við hluti, dýr og annað fólk. Það er eitthvað sem vofir yfir en við getum ekki vitað hvað það er.
Ókyrrð fjallar um tilraunir okkar til að hafa stjórn á tilfinningum, um innra líf og ofvöxt ímyndunaraflsins.
Sýningin er samin af leikhópnum.
Sýningin Ókyrrð var frumsýnd í Reykjavík í lok september og stuttu síðar flutt á Diskurs-leiklistarhátíðinni í Giessen í Þýskalandi við góðar viðtökur. Ókyrrð er nú tekin aftur til sýningar vegna fjölda áskoranna. Sýningar í Kassanum verða aðeins tvær, 29. og 30. desember.
Leikendur: Ragnar Ísleifur Bragason, Margrét Bjarnadóttir, Friðgeir Einarsson
Hljóðheimur: Kristján Loðmfjörð
Kínetísk ráðgjöf: Saga Sigurðardóttir
Leikstjórn: Friðgeir Einarsson