Yndisleg, falleg og einstaklega litrík sýning um fólk og dýr á sjó og landi.
Hafdís í skrautfiskabúðinni Fjörfiskar er löngu hætt að selja fallegu fiskana sína. Þeir eru vinir hennar og hún vill miklu heldur segja af þeim sögur, eins og til dæmis söguna af Sindra silfurfiski og leyndarmálinu hans.
Fyrir þremur áratugum sýndi Þjóðleikhúsið leikritið Krukkuborg eftir Odd Björnsson þar sem sérstök ljósatækni var notuð til þess að skapa undurfallegan neðansjávarheim. Hin heillandi kynjadýr hafsins sem búin voru til af mikilli list fyrir þá sýningu skjóta nú upp kollinum á ný í Kúlunni til þess að gleðja yngstu áhorfendurna.
Nýtt leikverk fyrir yngstu börnin um dulúðugar og heillandi sjávarverur.
Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson
Frumsýning í Kúlunni í lok október
Sýningin tekur um 35 mínútur.