Dans, leikur, tónlist og texti í óvenjulegu verki um samskipti kynjanna
Verkið Systur sem þær Ástrós og Lára sömdu og frumsýndu í Iðnó fyrir ári síðan fékk afar lofsamlegar viðtökur. Nú halda þær samstarfinu áfram með nýju verki, Bræðrum, sem er myndrænt leikhúsverk, fullt af dansi, tónum og texta. Verkið munu þær flytja ásamt nokkrum karlkyns leikurum og dönsurum.
Bræður fjallar um manneskjuna, konur og karlmenn sem kynverur í heimi sem er fullur af ranghugmyndum um kynlíf og samskipti kynjanna. Í brennidepli eru meðal annars ólíkar væntingar fólks til lífsins og réttur manneskjunnar til að lifa því lífi sem hún þráir. Áleitið, nærandi og fyndið verk, sem máir út landamæri milli listgreina.
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.