10.06 2010

Umsóknarferli

Leikritunarsjóðurinn Prologos 

Prologos veitir höfundum styrk til að vinna að leikhandriti, en einnig eru veittir styrkir vegna leiksmiðjuverkefna. Næsti skilafrestur umsókna er til og með 13. september 2010

Fagráð sjóðsins fjallar um innsendar umsóknir og mælir með verkefnum, en stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun. 
 

Auglýst er eftir:
 
a) Hugmynd að leikriti. Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkinu á 2 blaðsíðum, 5 síður af leiktexta og stutta ferilskrá höfundar (1 bls.). Umsókn skal ekki vera lengri en 10 bls. í heild. Umsóknir þarf að vera hægt að ljósrita og gögn skulu ekki bundin inn.

b) Hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni. Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkefninu á 2-4 blaðsíðum, lista yfir þátttakendur og stuttar ferilskrár þátttakenda. Umsókn skal ekki vera lengri en 10 bls. í heild. Umsóknir þarf að vera hægt að ljósrita og gögn skulu ekki bundin inn.

 

Umsóknir skal senda með tölvupósti á netfangið prologos@leikhusid.is eða í almennum pósti, merktar: Þjóðleikhúsið, Prologos, Lindargötu 7, 101 Reykjavík. Nafn, heimilisfang, sími og tölvupóstfang skulu fylgja.

 

Nánari upplýsingar má  fá með því að senda tölvupóst á prologos@leikhusid.is.




Letur breytingar


Leit