Þú ert hér: Þjóðleikhúsið /
Hallur Ingólfsson
Hallur Ingólfsson hefur samið tónlist fyrir fjölda dansverka, leiksýninga, útvarpsleikrita og kvikmynda. Árið 2006 hlaut Hallur Grímutilnefningu fyrir tónlistina í leiksýningunni Glæpur gegn diskóinu sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Árið áður hlaut Hallur Eddu tilnefningu fyrir kvikmyndatónlist sína í stuttmyndinni Töframaðurinn. Meðal nýlegra verka Halls í leikhúsinu má nefna Maríubjallan og Herra Kolbert fyrir Leikfélag Akureyrar, Mind Camp sem sýnt var í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Ritskoðarinn sem sýndur var í Sjóminjasafninu, Afgangar sem sýnt var í Austurbæ, Skoppu og Skrítlu sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu og Hér og nú sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hallur var einnig tónlistarstjóri í söngleiknum Gretti sem sýndur var Borgarleikhúsinu á síðasta ári. Hallur vann fyrst fyrir Þjóðleikhúsið árið 2005 í sýningunni Frelsi sem sett var upp á smíðaverkstæðinu. Nánari upplýsingar og tóndæmi má nálgast á heimasíðu Halls www.13.is/hallur