Guðni Franzson
Guðni Franzson lauk einleikaraprófi á klarinettu og prófi frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík árið 1984. Síðar fór Guðni til Hollands og stundaði framhaldsnám í klarínettuleik hjá George Pieterson, Walter Boeykens og Harry Sparnaay, til þess hlaut hann m.a. styrki frá hollenska menntamálaráðuneytinu og hinum danska Léonie Sonning sjóði. Guðni hefur komið fram sem einleikari í mörgum löndum Evrópu, Brazilíu, Canada og í fyrrum Sovétríkjum, hljóðritað fjölda geisladiska með nýrri og klassískri tónlist jafnframt því að leika og hljóðrita þjóðlega tónlist, t.d. með Rússíbönum. Guðni var einn af stofnendum CAPUT árið 1987 en hópurinn er meðal virtustu flytjenda nýrrar tónlistar í Evrópu. Samhliða hljóðfæraleiknum vinnur Guðni einnig sem tónsmiður og stjórnandi. Hann hefur samið tónlist fyrir fjölda dansverka, leiksýninga, kammerverk, músík fyrir börn og tónverk fyrir framandi hljóðfæri eins og leirker. Hann hefur tekið virkan þátt í dans- og leiksýningum, m.a. með
Pars Pro Toto og leikið Títlu Bjarts í Sumarhúsum á fjölum Þjóðleikhússins í
Sjálfstæðu fólki. Guðni stýrir gjarnan CAPUT á tónleikum og við hljóðritun auk þess að stjórna Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólanna og öðrum hljómsveitum.