Þú ert hér: Þjóðleikhúsið /
Þórhallur Sigurðsson
Þórhallur Sigurðsson hefur leikstýrt á fjórða tug leiksýninga við Þjóðleikhúsið. Hann hefur meðal annars stýrt hér frumflutningi á mörgum íslenskum verkum. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru Sölumaður deyr, Bílaverkstæði Badda, Kæra Jelena, Hafið, Gauragangur, Þrek og tár, Græna landið og Koddamaðurinn. Þórhallur hefur unnið við fjölmargar barnasýningar Þjóðleikhússins í fjörtíu ár sem leikari og leikstjóri. Hann hefur leikið hlutverk eins og Grislinginn í Bangsimon, Litla Kláus, Aldinborann í Ferðinni til tunglsins, Jónatan í Kardimommubænum svo nokkur séu nefnd. Hann leikstýrði barnaleikritunum Krukkuborg, Ömmu þó, Emil í Kattholti, Bláa hnettinum og Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Hann er einnig leikstjóri jólasýningarinnar Leitin að jólunum sem verður sýnd í þriðja sinn í Þjóðleikhúsinu nú á aðventunni. Sýningin fékk Grímuverðlaunin sem best barnasýning ársins árið 2006. Hann leikstýrði einnig sýningunni Gott kvöld sem hlaut sömu verðlaun árið 2007. Hann er nú listrænn stjórnandi Kúlunnar, barnasviðs Þjóðleikhússins.
Nýleg hlutverk innnan Þjóðleikhússins
Skoppa og Skrítla í söngleik, Hart í bak, Sindri silfurfiskur, Mjallhvít. Tíu fingur og Gott kvöld
Hefur leikstýrtAðstoðarleikstjórn í