Linda Ásgeirsdóttir

LINDA ÁSGEIRSDÓTTIR lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1998, en áður hafði hún stundað söngnám við Söngskólann í Reykjavík í fjögur ár. Linda hefur leikið í nokkrum barnaleikritum með ýmsum leikhópum, tekið þátt í leikhússporti í Iðnó og var um hríð félagi í Spaugstofunni. Hún fór með hlutverk Ölfu skipslæknis í geimsápunni
Hnetunni í Iðnó og Berglindar í
Leitum að ungri stúlku í hádegisleikhúsi Iðnó. Hér í Þjóðleikhúsinu hefur Linda leikið ýmis hlutverk í
RENT, Sollu stirðu í
Glanna glæp í Latabæ, Susan Dale í
Vér morðingjar, Lóu fiðrildastelpu og fleiri hlutverk í
Bláa hnettinum, þernu Roxönu og fleiri hlutverk í
Cyrano frá Bergerac, ýmis hlutverk í
Syngjandi í rigningunni og sjógörl í
Strompleiknum. Hún lék Önnu Jónu í
Jóni Oddi og Jóni Bjarna og Fjólu í
Rakstri. Linda er annar helmingur vinkvennanna
Skoppu og Skrítlu.
Nýleg hlutverk innnan Þjóðleikhússins
HöfundurSkoppa og Skrítla
Hefur leikið íSkoppa og Skrítla og Skoppa og Skrítla í söngleik