Þú ert hér: Þjóðleikhúsið /

Katrín Þorvaldsdóttir

Katrín Þorvaldsdóttir er brúðugerðameistari og hefur hannað fjöldann allan af leikmyndum og búningum fyrir hinar ýmsu sýningar. Barnasýningar eru hennar sérgrein og hafa leikhúsin í landinu, þá sérstaklega Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Möguleikhúsið fengið að nýta krafta hennar. Brúðurnar hennar skipta tugum og hafa margar þeirra ferðast víða um heiminn. Af hennar uppáhaldsverkum fyrir leikhús, má nefna Snuðru og Tuðru og Langafa prakkara í Möguleikhúsinu og Kardimommubærinn og Snædrottningin í Þjóðleikhúsinu. Katrín hefur haldið einkasýningar á brúðum og grímum hér heima og erlendis. Hennar uppáhalds efniviður er íslenskur þari en hún hefur rannsakað hann og sérhæft sig í að nýta til brúðu- og grímugerðar. Katrin vann jóladagatal Stöðvar 2 ásamt Bernd Ogrodnik árið 2005. Hún gerði búningana fyrir Eldhús eftir máli og var tilnefnd til Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2006 fyrir þá vinnu.

Nýleg hlutverk innnan Þjóðleikhússins

Sá um leikmyndina í

Skoppa og Skrítla

Sá um búninga í

Skoppa og Skrítla, Skoppa og Skrítla í söngleik og Eldhús eftir máli

Umsjón gríma í

Eldhús eftir máli

Þjóðleikhúsið