Girnileg gjöf!
Gjafakort Þjóðleikhússins veitir tækifæri á að bregða sér inn í annan heim, yfir í annan tíma í eina kvöldstund! Handhafi gjafakortsins þarf ekki annað að gera en velja sér sýningu og panta sér sæti hjá miðasölu. Einfaldara getur það ekki verið!
Öðruvísi gjöf!
Gjafakort í Þjóðleikhúsið kostar einungis 4.300 krónur og að sjálfsögðu bjóðum við sérkjör ef keyptur er ákveðinn fjöldi gjafakorta. Nánari upplýsingar um magnafslátt eru veittar á netfangi miðasölu Þjóðleikhússins: midasala@leikhusid.is
Gleðileg jólagjöf!
Gjafakort Þjóðleikhússins er tilvalin jólagjöf handa vinum, ættingjum og starfsfólki. Gjafakortið sameinar ævintýraheim leikhússins, hagkvæmni og einfaldleika og auðveldar þér jólainnkaupin. Starfsfólk Þjóðleikhússins er boðið og búið að veita þér allar nánari upplýsingar um verð og þá möguleika sem í boði eru.
Þægileg gjöf!
Við bjóðum upp á heimsendingarþjónustu á gjafakortum. Pantanir á heimsendum gjafakortum fyrir jólin þurfa að berast fyrir 15. desember.
Hér getur þú pantað gjafakort á netinu
Gjafakortin eru einnig afgreidd í miðasölu leikhússins, og hægt að panta þau símleiðis í s. 551 1200 og með því að senda póst á netfangið midasala@leikhusid.is.