18.01 2012

Gott gengi listamanna Þjóðleikhússins á erlendri grundu  

Þjóðleikhúsið óskar þeim Baltasar Kormáki, Ingvari E. Sigurðssyni og Ólafi Darra Ólafssyni til hamingju með gott gengi á erlendri grundu undanfarið.
 
Kvikmynd Baltasars Kormáks Contraband, sem frumsýnd var í Bandaríkjunum fyrir skemmstu, hefur fengið frábærar viðtökur þar ytra. Myndin var söluhæsta kvikmyndin vestan hafs um síðustu helgi, en hún skartar Mark Whalberg í aðalhlutverki og byggir á íslensku myndinni Reykjavík - Rotterdam. Baltasar hefur á undanförnum tveimur áratugum leikið fjölda hlutverka í Þjóðleikhúsinu, nú síðast í Listaverkinu í haust, og sett upp margar af vinsælustu leiksýningum Þjóðleikhússins á undanförnum árum. Hann leikstýrir Afmælisveislunni, sem fer á svið í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í vor.
 
Ingvar E. Sigurðsson
fer um þessar mundir með hlutverk í Hamskiptunum í Þjóðleikhúsinu í Osló, en þar er um að ræða endurfrumsýningu á sýningu Gísla Arnar Garðarssonar sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu árið 2007. Sýningin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda í Noregi. Ingvar, sem hefur verið einn af burðarásunum í leikhópi Þjóðleikhússins um tveggja áratuga skeið, mun fara með aðalhlutverk í Afmælisveislunni í leikstjórn Baltasars Kormáks hér í Þjóðleikhúsinu í vor, en þeir léku jafnframt saman í Listaverkinu á Stóra sviði Þjóðleikhússins fyrr á leikárinu.
 
Ólafur Darri Ólafsson
er fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið, en fékk leyfi frá störfum til að leika í sýningu Gísla Arnar Garðarssonar á Hróa hetti hjá Royal Shakespeare Company á liðnu hausti. Ólafur Darri hefur fengið frábæra dóma í hlutverki munksins, og sýningin hefur notið mikilla vinsælda í Bretlandi.
 

Fréttir



Letur breytingar


Leit