28.12 2011

Frumsýningu að ljúka í Kúlunni!

Frumsýningu á Litla skrímslinu og stóra skrímslinu var að ljúka rétt í þessu í Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðleikhússins.

Bækurnar um skrímslin ljúfu eftir Áslaugu Jónsdóttur hafa notið mikilla vinsælda. Þau stíga nú í fyrsta sinn á svið  en leikritið byggir á fyrstu bókunum þar sem reynir á vináttu og hugrekki þeirra.  

Skrímslunum var afar vel tekið á frumsýningunni og það voru kátir frumsýningargestir sem héldu út í vetrarsíðdegið.

Fréttir



Letur breytingar


Leit