Oddur Björnsson leikskáld og rithöfundur lést s.l. mánudag, 79 ára að aldri. Oddur var einn helsti frumkvöðull íslenskrar leikritunar á 7. og 8. áratug síðustu aldar og sýndi Þjóðleikhúsið sjö leikrita hans. Í heild liggja eftir Odd á fjórða tug leikrita fyrir leiksvið, útvarp og sjónvarp, en hann sinnti einnig öðrum ritstörfum.
Þjóðleikhúsið sýndi sjö leikrit eftir Odd:
· Jóðlíf, 1965, leikstjóri Erlingur Gíslason
· Hornakórallinn, 1967, leikstjóri Benedikt Árnason
· Dansleikur, 1974, leikstjóri Sveinn Einarsson
· Meistarinn, 1977, leikstjóri Benedikt Árnason
· Krukkuborg, 1979, leikstjóri Þórhallur Sigurðsson
· Eftir konsertinn, 1983, leikstjóri Oddur Björnsson
· Þrettánda krossferðin, 1993, leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir
Oddur leikstýrði leikriti sínu Eftir konsertinn hér í Þjóðleikhúsinu og þýddi tvö verk fyrir leikhúsið, Næst skal ég syngja fyrir þig og Endasprett.
Oddur Björnsson fæddist árið 1932 í Ásum í Skaftártungu. Hann nam leikhúsfræði við Háskólann í Vínarborg 1954-56 og kvaddi sér hljóðs sem leikskáld með fimm einþáttungum á árunum 1962-65. Hann starfaði með leikhópnum Grímu sem höfundur og leikstjóri, var leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar 1978-80 og leikstýrði hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar og RÚV.
Oddur fékk menningarverðlaun DV árið 1981 fyrir leikstjórn á Beðið eftir Godot og heiðursverðlaun Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna í júní á þessu ári fyrir framlag sitt til íslenskra sviðslista.
Þjóðleikhúsið þakkar Oddi fyrir framlag hans til starfs Þjóðleikhússins og leiklistar á Íslandi og sendir aðstandendum hans samúðarkveðjur.