Nú um helgina fer leikhópur frá Þjóðleikhúsinu til Moskvu þar sem leikritið Sindri silfurfiskur eftir Áslaugu Jónsdóttur verður sýnt á mikilli barnaleikhúshátíð.
Boð barst til leikhússins í kjölfar tveggja leikferða með sýninguna til Svíþjóðar þar sem Rússarnir sáu leikritið og hrifust svo af að þeir bjóða 10 manna hópi til Moskvu á hátíðina.
Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið sýnir í Rússland.
Til þess að börnin skilji nú allt hefur leikritið verið þýtt á rússnesku og raddir fiskanna leiknar af rússneskumælandi fólki hér á landi og svo kemur þekkt rússnesk leikkona til liðs við hópinn í Moskvu.
Á hátíðinni mun þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir og leikstjórinn, Þórhallur Sigurðssson handa erindi og sitja fyrir svörum um íslenskt leikhús og þó sérstaklega íslenska barnaleikhúsið. Þá mun Áslaug Jónsdóttir fjalla um verk sín.