29.09 2011

Frábærar viðtökur á frumsýningu Listaverksins

Fyrstu frumsýningu leikársins á Stóra sviðinu var að ljúka rétt í þessu. Stemningin á Stóra sviðinu var frábær og fögnuðu áhorfendur listamönnunum ákaft í lok sýningar.

Listaverkið er endurgerð geysivinsællar sýningar sem var á fjölum Þjóðleikhússins fyrir 14 árum síðum. Sömu leikarar og áður fara með aðalhlutverkin, en það eru þeir en það eru þeir Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason og Baltasar Kormákur, sem stígur nú á svið aftur eftir 12 ára hlé.


Fréttir



Letur breytingar


Leit