18.09 2011

Frumsýning á Svörtum hundi prestsins

Í gær var leikritið  Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur frumsýnt  í Kassanum. Stemningin meðal áhorfenda og í leikhópnum var frábær á þessari fyrstu sýningu og hlógu áhorfendur dátt alla sýninguna. Í lokin fögnuðu þeir svo sýningunni og listamönnunum öllum  með standandi uppklappi og stappi.

 

Í dag birtist leikdómur frá Silju Aðalsteinsdóttir á TMM.is þar sem hún segir meðal annars: "það skal sagt undir eins í upphafi að þetta var einstaklega frumleg, falleg og fyndin sýning." og "Ekki missa af Svörtum hundi prestsins".

Uppselt er á fyrstu 8 sýningarnar á Svörtum hundi prestsins

Fréttir



Letur breytingar


Leit