06.09 2011

Þjóðleikhúsið lengir opnunartíma miðasölu vegna mikillar kortasölu

Sala á leikhúskortum Þjóðleikhússins hefur gengið svo vel að miðasölu Þjóðleikhússins hefur ekki tekist að anna eftirspurn. Því hefur verið ákveðið að lengja opnunartíma miðasölu til kl. 20 öll kvöld vikunnar út septembermánuð. Miðasala Þjóðleikhússins verður því opin kl. 10-20 virka daga og kl. 12-20 um helgar.
 
Uppselt er orðið á margar af fyrstu sýningum haustsins. Meðal annars er orðið nær uppselt á allar sýningar sem settar höfðu verið í sölu á Listaverkinu, og því hefur verið ákveðið að bæta við nokkrum aukasýningum. Sömuleiðis eru fyrstu sýningar á Svörtum hundi prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur óðum að fyllast.
 
Leikhúsgestir eru því hvattir til að tryggja sér leikhúskort Þjóðleikhússins hið allra fyrsta. Kortasölu lýkur 30. september.
 

Fréttir



Letur breytingar


Leit