Grímuhátíðin var haldin í 9. sinn þann 16. júní, en þar voru veitt 16 fagverðlaun fyrir framúrskarandi árangur á vettvangi sviðslista, auk heiðursverðlauna og sérstakra áhorfendaverðlauna.
Sýningin Lér konungur í sviðsetningu Þjóðleikhússins hlaut flest verðlaun eða sex talsins og er því óskoraður sigurvegari Grímunnar fyrr og síðar, en aldrei fyrr hefur ein og sama sýningin fengið jafnmörg verðlaun.
Lér konungur var valin sýning ársins, Benedict Andrews var valinn leikstjóri ársins, Arnar Jónsson leikari ársins í aðalhlutverki, Margrét Vilhjálmsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson leikarar ársins í aukahlutverkum, auk þess sem Hildur Guðnadóttir fékk verðlaun fyrir tónlist/hljóðmynd ársins.
Þjóðleikhúsið er stolt af þessum frábæra árangri og óskar verðlaunahöfunum innilega til hamingju.
Það er mikill fengur að því fyrir Þjóðleikhúsið að fá Benedict Andrews til liðs við sig, en Benedict er meðal fremstu leikstjóra í heiminum í dag. Hann er þekktur fyrir framúrskarandi vinnu með leikurum og einstaklega áhrifamiklar túlkanir á klassískum verkum og þessir eiginleikar njóta sín afar vel í sviðsetningu hans á Lé konungi, þar sem honum hefur svo sannarlega tekist að laða fram sprengikraftinn í samverkamönnum sínum í Þjóðleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið kemur til með að njóta krafta Benedicts í framtíðinni, en í undirbúning er sviðsetning hans á Macbeth á leikárinu 2012 / 2013.
Við erum þegar farin að hlakka til!
Hér að neðan má sjá lista yfir þá sem hlutu Grímuna í ár:
Sýning ársins
Leiksýningin Lér konungur eftir William Shakespeare í sviðssetningu Þjóðleikhússins. Leikstjórn Benedict Andrews.
Leikstjóri ársins
Benedict Andrews. Fyrir leikstjórn í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
Leikari í aðalhlutverki
Arnar Jónsson. Fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
Leikkona í aðalhlutverki
Unnur Ösp Stefánsdóttir. Fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Elsku barni í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
Leikari í aukahlutverki
Atli Rafn Sigurðarson. Fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
Leikkona í aukahlutverki
Margrét Vilhjálmsdóttir. Fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
Leikskáld ársins
Auður Jónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson. Fyrir leikverkið Fólkið í kjallaranum í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
Leikmynd ársins
Halla Gunnarsdóttir. Fyrir leikmynd í leiksýningunni Strýhærða Pétri í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
Búningar ársins
Filippía Elísdóttir. Fyrir búninga í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
Lýsing ársins
Björn Bergsteinn Guðmundsson. Fyrir lýsingu í leiksýningunni Ofviðrinu í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhússins.
Tónlist/Hljóðmynd ársins
Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir. Fyrir tónlist í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins.
Söngvari ársins
Ólafur Kjartan Sigurðarson. Fyrir hlutverk sitt í óperunni Rigoletto í sviðssetningu Íslensku óperunnar.
Dansari ársins
Gunnlaugur Egilsson. Fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið.
Danshöfundur ársins
Valgerður Rúnarsdóttir og hópurinn. Fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Eyjaskeggi í sviðssetningu Reykjavik Dance Festival.
Barnasýning ársins
Brúðuleiksýningin Gilitrutt eftir Bernd Ogrodnik. Í samvinnu við Benedikt Erlingsson í sviðssetningu Brúðuheima. Leikstjóri Benedikt Erlingsson.
Útvarpsverk ársins
Útvarpsleikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson. Leikari Ingvar E. Sigurðsson. Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson. Hljóðsetning Einar Sigurðsson. Leikstjórn Jón Atli Jónasson.
Heiðursverðlaun
Leikskáldið Oddur Björnsson. Fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu leiklistar.