06.06 2011

Þjóðleikhúsið hlýtur 30 tilnefningar til Grímunar

Tilnefningar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna voru opinberaðar í dag,  mánudaginn 6. júní kl. 16 í Borgarleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið hlýtur alls 30 tilnefningar í ár sem er virkilega glæsilegur árangur. Lér konungur hlýtur alls 10 tilnefningar og Allir synir mínir hlýtur 6 tilnefningar en sýningarnar eru báðar tilnefndar sem sýning ársins 2011. Ballið á Bessastöðum og Herra Pottur og ungfrú Lok hljóta tilnefningar sem barnasýning ársins.
Grímuhátíðin verður haldin í Borgarleikhúsinu þann 16. júní og í beinni útsendingu á Stöð 2.

Tilnefningar Þjóðleikhússins til Grímuverðlaunanna 2011 eru:

SÝNING ÁRSINS 2011
  • ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller
þýðing Hrafnhildur Hagalín
leikstjórn Stefán Baldursson
Þjóðleikhúsið

  • LÉR KONUNGUR eftir William Shakespeare
þýðing Þórarinn Eldjárn
leikstjórn Benedict Andrews
Þjóðleikhúsið

BARNASÝNING ÁRSINS 2011
  • BALLIÐ Á BESSASTÖÐUM eftir Gerði Kristnýju
leikstjórn Ágústa Skúladóttir
Þjóðleikhúsið

  • HERRA POTTUR OG UNGFRÚ LOK eftir Bohuslav Martinu og Christophe Garda
þýðing Hlöðver Ellertsson
leikstjórn Ágústa Skúladóttir
Óperartic í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
Harpa og Þjóðleikhúsið

DANSHÖFUNDUR ÁRSINS 2011
  • Erna Ómarsdóttir fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Við sáum skrímsli í sviðssetningu Shalala í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
  • Lára Stefánsdóttir í samstarfi við hópinn fyrir kóreógrafíu í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
  • Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir og hópurinn fyrir kóreógrafíu í leiksýningunni Verði þér að góðu í sviðssetningu Mín og vina minna í samstarfi við Þjóðleikhúsið

DANSARI ÁRSINS 2011
  • Ásgeir Helgi Magnússon fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Við sáum skrímsli í sviðssetningu Shalala í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
  • Gunnlaugur Egilsson fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Bræðrum í sviðssetningu Pars Pro Toto í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
TÓNLIST/HLJÓÐMYND ÁRSINS 2011
  • Gísli Galdur Þorgeirsson fyrir tónlist og hljóðmynd í leiksýningunni Verði þér að góðu í sviðssetningu Mín og vina minna í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir fyrir tónlist í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Valdimar Jóhannsson fyrir tónlist í danssýningunni Við sáum skrímsli í sviðssetningu Shalala í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
LÝSING ÁRSINS 2011
  • Halldór Örn Óskarsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Lárus Björnsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Öllum sonum mínum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Lárus Björnsson fyrir lýsingu í danssýningunni Við sáum skrímsli í sviðssetningu Shalala í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
BÚNINGAR ÁRSINS 2011
  • Gabríela Friðriksdóttir og Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir fyrir búninga í danssýningunni Við sáum skrímsli í sviðssetningu Shalala í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið
  • Helga I. Stefánsdóttir fyrir búninga í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LEIKMYND ÁRSINS 2011
  • Börkur Jónsson fyrir leikmynd í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LEIKKONA ÁRSINS 2011 Í AUKAHLUTVERKI
  • Arnbjörg Hlíf Valsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Öllum sonum mínum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Kristbjörg Kjeld fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Heddu Gabler í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Ólafía Hrönn Jónsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LEIKARI ÁRSINS 2011 Í AUKAHLUTVERKI
  • Atli Rafn Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Valur Freyr Einarsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Heddu Gabler í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LEIKARI ÁRSINS 2011 Í AÐALHLUTVERKI
  • Arnar Jónsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Björn Thors fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Öllum sonum mínum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Jóhann Sigurðarson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Öllum sonum mínum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LEIKSTJÓRI ÁRSINS 2011
  • Benedict Andrews fyrir leikstjórn í leiksýningunni Lé konungi í sviðssetningu Þjóðleikhússins
  • Stefán Baldursson fyrir leikstjórn í leiksýningunni Öllum sonum mínum í sviðssetningu Þjóðleikhússins
LEIKSKÁLD ÁRSINS 2011
  • Ég og vinir mínir fyrir leikverkið Verði þér að góðu í sviðssetningu Mín og vina minna í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Fréttir



Letur breytingar


Leit