Þjóðleikhúsið sýnir sýningu sína á Gerplu á Den Nationale Scene í Bergen í kvöld, á hinni virtu listahátíð Festspillene.
Tvísýnt var með þáttöku íslenska hópsins vegna raskana á flugi vegna eldgossins í Grímsvötnum, en smám saman komst leikhópurinn í loftið, og síðasti leikarinn stökk inn í hús á elleftu stundu, á miðri æfingu í gærkvöldi!
Uppselt er á sýninguna í kvöld og mikil spenna ríkir!