25.05 2011

Sindri silfurfiskur sýndur í Malmö

Sindri silfurfiskur eftir Áslaugu Jónsdóttir var sýndur tvisvar sinnum í dag á alþjóðlegri barnaleikhúshátíð Assitej í Malmö. Sýningarnar tókust mjög vel og vöktu hrifningu áhorfenda. Aflýsa þurfti tveimur sýningum í gær á Sindra silfurfiski vegna þeirra tafa sem orðið hafa undanfarna daga á flugi sökum ösku úr Grímsvötnum.

Aðstandendur sýningarinnar munu taka þátt í heimsþingi um sviðslistir fyrir börn og unglinga. Á þinginu verður fjallað um reynslu barna og unglinga og þá ímynd sem menning hefur í þeirra huga, nýja strauma, gæði og fjölbreyttni í sviðslistum.

 

Hér er skemmtilegt viðtal við aðstandendur sýningarinnar í Skánskan.



Fréttir



Letur breytingar


Leit