Undanfarna mánuði hefur staðið yfir undirbúningur í Þjóðleikhúsinu vegna þáttöku þess í tveim alþjóðlegum listahátíðum, nú er tvísýnt um þáttöku vegna eldgossins í Grímsvötnum.
Áætlað er að Þjóðleikhúsið sýni Gerplu í leikgerð Baltasar Kormáks á alþjóðlegu listahátíðinni í Bergen í Noregi um næstu helgi, en nú er tvísýnt um þátttöku. Listhátíðin í Bergen er stærsta hátíð sinnar tegundar á Norðurlöndum og áætlað að Þjóðleikhúsið sýni þrjá sýningar á aðal sviði hátíðarinnar frá 26. til 28. maí.
Þjóðleikhúsinu hefur einnig verði boðið að sýna Sindra silfurfisk eftir Áslaugu Jónsdóttur á alþjóðlegri barnaleikhúshátíð Assitej sem fram fer í Kaupmannahöf og Malmö, og eru sýningar áætlaðar þann 24. og 25. maí. Barnaleikhúshátin stendur yfir í tíu daga og sýndar verða samtals 27 leiksýningar víðsvegar að úr heiminum.
Hátt í þrjátíu leikara og tæknimenn Þjóðleikhússins eru nú í viðbragðsstöðu, en samkvæmt áætlun átti fyrsti hópurinn að fara út í morgun.
Hérna má lesa um um Gerplu í Bergen:
Hérna má lesa um Sindra silfurfisk í Malmö: