18.04 2011

Þjóðleikhúsið óskar Vesturporti innilega til hamingju með frábæran árangur og verðskuldaðan heiður.  

Evrópsku leiklistarverðlaunin voru veitt í  fjórtánda sinn í St. Pétursborg í gær.
Verðlaunin féllu að þessu sinni  í skaut þýska leikhúslistamannsins Peter Stein, en hann hefur verið áberandi í leikhúslífi Þýskalands og Evrópu um áraráðir og er meðal annars  stofnandi hins virta leikhúss; Schaubühne í Berlín.  
Evrópsku leiklistarverðlaunin eru ein virtustu verðlaun sem veitt eru á Evrópuvísu, en þennan heiður hafa listamenn á borð við Pinu Bausch, Peter Brook, Harold Pinter og  Lev Dodin hlotið á umliðnum árum.
Samhliða Evrópsku leiklistarverðlaununum eru veitt Evrópuverðlaun fyrir nýsköpun í leikhúsi: Europe Prize New Theatrical Realities.
Þau verðlaun hlaut Veturport að þessu sinni, ásamt með fimm öðrum leikhúslistamönnum /leikhópum frá ólíkum svæðum í Evrópu. Vesturport er þar í góðum hópi, en þann lista fylla leikhúslistamenn á borði við hinn virta breska leikstjórann Katie Michel, og finnska leikstjórann og leikhúsjöfurinn, Kristian Smeds.
 
Listi yfir vinningshafa;  New Theatrical Realities.
Vesturport Theatre (Iceland).
Viliam Dočolomanský (Slovakia/Czech Republic).
Teatro Meridional  (Portugal).
Kristian Smeds  (Finland).
Katie Mitchell (United Kingdom).
Andrey Moguchiy (Russia).
 
Sjá nánar hérna.

 


 
Um leið og Þjóðleikhúsið óskar Vesturporti innilega til hamingju með frábæran árangur, þakkar Þjóðleikhúsið gott samstarf á liðnum árum, en tvær sýningar hópsins, Hamskiptin og Brim, hafa verið sýnd í Þjóðleikhúsinu, auk þess sem leikarar Þjóðleikhússins hafa komið ríkulega að starfi Vesturports, hér heima og erlendis.

 

 

Fréttir



Letur breytingar


Leit