31.03 2011

Þjóðleikur - Tvær stórar leiklistarhátíðir sitt hvora helgina

Hvorki meira né minna en átján leikhópar ungs fólks af öllu Norður- og Austurlandi – allt frá Blönduósi til Hafnar í Hornafirði – taka þátt í leiklistarhátíðinni Þjóðleik í ár. Þjóðleikur er haldinn að frumkvæði fræðsludeildar Þjóðleikhússins í samstarfi við fjölda aðila og felst í því að leikhópar velja sér eitt þriggja glænýrra íslenskra leikrita sem skrifuð eru sérstaklega fyrir verkefnið og sett upp í heimabyggð hvers leikhóps.  Hóparnir eru allir skipaðir leikurum á aldrinum 13-20 ára en eru undir handleiðslu fullorðinna leikstjóra. Þjóðleikhúsið veitir Þjóðleikshópunum aðstoð í formi faglegrar ráðgjafar og námskeiða yfir æfingatímann.  Þjóðleikur sameinar þannig nýja íslenska leikritun í hæsta gæðaflokki og leiklistarstarf ungs fólk, auk þess að skapa vettvang til samtals milli fagfólks og áhugafólks í leiklistinni.
Eitt af því sem kemur í veg fyrir að skólar setji oftar en raun ber vitni upp leiksýningar, er skortur á vönduðum styttri leikverkum fyrir unga leikara. Því eru þrjú  íslensk leikrit pöntuð sérstaklega fyrir Þjóðleik hverju sinni sem hóparnir geta valið úr til uppsetningar.  Leikskáldin sem skrifa fyrir Þjóðleik í ár eru Kristín Ómarsdóttir, Jón Atli Jónasson, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ólafur Egill Ólafsson . Tvö þau síðastnefndu skrifa verk í sameiningu.
Nú er komið að hátindi Þjóðleiks, því haldnar verða tvær glæsilegar lokahátíðir 1.-2. apríl á Akureyri og 8.-10. apríl á Egilsstöðum, þar sem allir hóparnir sýna afrakstur vinnu sinnar. Reikna má með að um 3-400 ungmenni komi að leiklistarhátíðinni að þessu sinni, auk tuga leiðbeinenda.

Þjóðleikur á Facebook.



Fréttir



Letur breytingar


Leit