Síðustu sýningar á Íslandsklukkunni hafa verið auglýstar núna í mars. Á þessar síðustu sýningar er fullt upp í rjáfur og komast mikið færri að en vilja. Þeir sem hafa misst af þessari einstöku leikhúsupplifun þurfa þó ekki að örvænta því til stendur að koma inn nokkrum sýningum um mitt næsta leikár.