24.08 2010

Leikhúskortin rjúka út

Frá því salan á leikhúskortum hófst sl. laugardag hefur mikið fjör verið í miðasölunni.  Ásóknin er mikil og ljóst að landsmenn eru ánægðir með þau verk sem boðið er uppá og munu vera duglegir að mæta í leihúsið í vetur. 

 

Við bjóðum leikhúskortin á 3ja ára gömlu verði eða 9.900 kr. og þeir sem eru 25 ára eða yngri frá leikhúskortið á 5.900 kr. Kortasalan verður til 10. október og þvi um að gera að tryggja sér kort sem fyrst.

 

Hægt er að kaupa kortin í miðasölu Þjóðleikhússins, í síma 551 1200 eða hér á leikhusid.is.

 

 


Fréttir



Letur breytingar


Leit