23.08 2010

Gleðilegt nýtt leikár!

Á leikárinu munum við bjóða áhorfendum upp á tvö af mögnuðustu verkum sígildra leikbókmennta, Lé konung og Heddu Gabler, og eitt áhrifamesta dramatíska verk 20. aldarinnar, Allir synir mínir. Frá frændum okkar Finnum kemur geysivinsælt leikrit, Finnski hesturinn, sem lýsir á bráðfyndinn hátt ýmsu sem við Íslendingar könnumst vel við úr okkar þjóðlífi. Undir lok leikársins frumsýnum við nýtt og ferskt verk með fjörugri tónlist eftir eitt ástsælasta leikskáld okkar, Ólaf Hauk Símonarson. Öll þessi verk eiga við okkur brýnt erindi. Þau kallast hvert með sínum hætti á við samtíma okkar, og þær spurningar sem Íslendingar hafa staðið frammi fyrir undanfarið. Jafnframt ættu áhorfendur að geta sótt í leikhúsið í vetur ríkulega skemmtun og andlega næringu.

Það er okkur sérstakt ánægjuefni að fá einn eftirsóttasta leikstjóra samtímans af sinni kynslóð, Benedict Andrews, til liðs við okkur en hann mun setja upp jólasýningu leikhússins, Lé konung. Fjöldi annarra frábærra listamanna af ólíkum kynslóðum mun leggja sitt af mörkum til að gera þennan vetur eftirminnilegan, jafnt okkar traustu máttarstólpar sem nýir kraftar.
 

Að vanda bjóðum við upp á gott úrval verka fyrir yngri kynslóðina, og höfum meðal annars fengið Gerði Kristnýju til að skrifa leikrit fyrir okkur, sem byggt er á hinum afar vinsælu barnabókum hennar um Bessastaði. Einnig munum við fá til liðs við okkur framsækna leikhópa úr ýmsum áttum, sem gera margvíslegar tilraunir með leiklistarformið.


Fréttir



Letur breytingar


Leit